Toppliðið missteig sig aftur

Fjölnismenn misstigu sig í Laugardalnum.
Fjölnismenn misstigu sig í Laugardalnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þróttur úr Reykjavík og topplið Fjölnis gerðu markalaust jafntefli í 15. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Laugardalnum í kvöld. 

Eftir leikinn er Fjölnir með sjö stiga forskot á ÍBV og Njarðvík sem eru í öðru og þriðja sæti. 

Þau mætast á laugardaginn í Vestmannaeyjum og getur annaðhvort liðið minnkað forskot Fjölnis niður í fjögur stig. 

Þróttur er hins vegar í sjötta sæti með 20 stig, þremur stigum á eftir ÍR sem er í fimmta sæti, umspilssæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert