Víkingar áfram eftir góða ferð til Albaníu

Pablo Punyed með boltann í fyrri leik liðanna á Víkingsvellinum.
Pablo Punyed með boltann í fyrri leik liðanna á Víkingsvellinum. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Íslands- og bikarmeistarar Víkings eru komnir í 3. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta eftir sigur á Egnatia frá Albaníu, 2:0, á útivelli. Albanska liðið vann fyrri leikinn 1:0 og vann Víkingur einvígið því 2:1.

Víkingsliðið mætir Flora Tallinn frá Eistlandi í næstu umferð.

Víkingar voru miklu betri í fyrri hálfleik og var boltinn á vallarhelmingi albanska liðsins nánast allan hálfleikinn.

Það skilaði sér í skrautlegu fyrsta marki leiksins á 28. mínútu er Gísli Gottskálk Þórðarson skaut í tvo varnarmenn og boltinn sveif yfir markvörð heimamanna.

Varamaðurinn Danijel Dejan Djuric, sem kom inn á fyrir meiddan Pablo Punyed, fékk úrvalsfæri til að skora annað markið en hann skaut yfir fyrir opnu marki á 45. mínútu eftir góða sókn Víkinga.

Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri og fór Víkingur með eins marks forystu, 1:0, inn í seinni hálfleikinn og var staðan í einvíginu þá jöfn, 1:1.

Víkingar byrjuðu seinni hálfleikinn með látum því Aron Elís Þrándarson kom Fossvogsliðinu í 2:0 á 47. mínútu er hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Karli Friðleifi Gunnarssyni.

Eftir markið féll Víkingsliðið aftar á völlinn og fór að verja forskotið.

Heimamenn fengu tvö góð færi til að jafna metin í einvíginu. Fyrst átti Arbin Zejnullai skot yfir úr markteignum í sannkölluðu dauðafæri og svo slapp Lorougnon Doukouo einn í gegn en Ingvar Jónsson varði vel frá honum.

Annars sköpuðu heimamenn lítið og góður varnarleikur Víkinga skilaði liðinu yfir línuna.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Paide 4:0 Stjarnan opna
90. mín. Leik lokið +7 - 4:0 - Það er búið að flauta til leiksloka og það eru leikmenn Paide sem fagna stórsigri á liði Stjörnunnar. Svakalega svekkjandi niðurstaða. Paide vinnur einvígi 5:2.
St. Mirren 3:1 Valur opna
75. mín. Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) skorar úr víti 3:1 - Tryggvi Hrafn skorar úr vítinu. Öruggt hjá honum. Geta Valsmenn komið til baka? Er möguleiki?

Leiklýsing

Egnatia 0:2 Víkingur R. opna loka
90. mín. Egnatia fær hornspyrnu Jón Guðni verst vel eftir árás í teiginn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert