Knattspyrnumaðurinn Dagur Örn Fjeldsted fer á láni út tímabilið frá Breiðabliki til HK í Bestu deild karla.
Dagur er fæddur árið 2005 og er sóknarmaður. Hann hefur komið til sögu í átta leikjum á tímabilinu með Breiðablik og skorað í þeim eitt mark, gegn Vestra í 4:0-sigri liðsins.
HK tilkynnti hann í dag en félagið er í 10. sæti í deildinni og hefur aðeins skorað 18 mörk í 16 leikjum, fæst allra liða ásamt Vestra.