Tímabilið búið fyrir fyrsta leik

Sveinn Sigurður Jóhannesson.
Sveinn Sigurður Jóhannesson. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumarkvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson sleit hásin á æfingu með nýja félagi sínu Vestra. 

Sveinn greindi frá tíðindunum á Instagram-síðu sinni í dag en hann mun ekkert spila með Vestra á tímabilinu. 

Sveinn er nýgenginn til liðs við Vestra og spilaði ekki leik í sumar. Sveinn var samningslaus áður en hann fór til Vestra en síðast var hann varamarkvörður Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert