Einfalt svar: „Nei“

Arnleifur Hjörleifsson.
Arnleifur Hjörleifsson. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Arnleifur Hjörleifsson varnarmaður ÍA var svekktur eftir jafntefli gegn Vestra, 0:0, í 17. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta í kvöld. 

ÍA er í sjötta sæti með 25 stig eftir leikinn og búið að missa Fram fram úr sér. 

Fyrstu viðbrögð eftir leik?

„Þetta var náttúrlega ótrúlegt að þetta endaði sem markalaust jafntefli. Ég er bara drullusvekktur að hafa ekki farið með 3 stig héðan,“ sagði Arnleifur í samtali við mbl.is.

Þið byrjið betur og eigið 2 góð færi i fyrri halfleik og byrjið siðan seinni halfleik. Siðan fjarar dálítið undan þessu hvað finnst þer?

„Já sammála því en mer leið eins og við værum með algjöra stjórn á því sem við vorum að gera fram að 75. mínútu.

Síðan fannst mér við losna alltof mikið upp og opnuðum fyrir skyndisóknir, stóðum vitlausu megin við menn. En fram að því leið mér eins og við algjöra stjórn á því sem við vorum að gera. Og klaufar að vera ekki komnir yfir á þeim tímapunkti.“

Haukur kom vel inn í dag lýst þer ekki vel að fá hann inn?

„Jú, Haukur kom vel inn og við vitum hvað hann getur. Frábært að fá hann aftur í skagatreyjuna.“

Koma fleiri leikmenn?

„Nei,“ sagði Arnleifur einfaldlega að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert