Nýliðar ÍR upp í fjórða sæti

Renato Punyed og félagar í ÍR eru komnir í fjórða …
Renato Punyed og félagar í ÍR eru komnir í fjórða sæti. mbl.is/Arnþór Birkisson

ÍR-ingar halda áfram uppteknum hætti í 1. deild karla í knattspyrnu eftir sigur á Þrótti úr Reykjavík, 1:0, í Breiðholtinu í kvöld. 

ÍR, sem er nýliði er með 26 stig og komið upp í fjórða sæti deildarinnar, sex stigum frá toppnum. Þróttur er í sjöunda sæti með 20 stig. 

Sigurmark ÍR-inga skoraði Róbert Elís Hlynsson á 20. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert