Fyrsti leikur Arons á Íslandi síðan 2006

Aron Einar að koma inn á í dag.
Aron Einar að koma inn á í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Þór og Njarðvík gerðu 2:2 jafntefli þegar liðin mættust á Akureyri í 1. deild karla í fótbolta í dag.

Aron Einar Gunnarsson kom inn á á 67. mínútu en hann kom til liðsins á dögunum en hann hefur verið að glíma við meiðsli og ekkert spilað síðan með landsliðinu í nóvember 2023. Hann spilaði síðast á Íslandi árið 2006 gegn HK í 1. deild HK.

Dominik Radic skoraði tvö mörk í upphafi seinni hálfleiks fyrir Njarðvík en Birkir Heimisson minnkaði muninn í 2:1 eftir vítaspyrnu. Vilhelm Ottó Biering Ottósson skoraði svo jöfnunarmarkið á 79. mínútu.

Þór er í 8. sæti með 187 stig og Njarðvík er í 4. sæti með 26 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert