Njótum þess að spila fótbolta

Hart barist í leik kvöldsins.
Hart barist í leik kvöldsins. mbl.is/Ólafur Árdal

„Þetta var virkilega góður leikur,“ sagði Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar í samtali við mbl.is eftir jafntefli gegn Breiðabliki, 2:2, í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Garðabænum í dag. 

Stjarnan lék vel og stóð í Blikaliðinu allan leikinn. Stjörnumenn eru í sjöunda sæti með 24 stig, fjórum stigum frá fjórða sætinu.

„Við vorum með mikla stjórn. Við bjuggumst við því að þeir yrðu mjög passívir í fyrri hálfleik, óvenju passívir.

Það hentar okkur fínt. Þegar að við njótum þess að spila fótbolta þá höfum við ekki áhyggjur af því að önnur lið pakki í vörn, þó að leikurinn verði ekki jafn skemmtilegur. 

Síðan stigu Blikarnir upp í seinni hálfleik og þá var leikurinn frekar jafn. Ef ég tek þetta saman í 90 mínútur þá fannst mér við eiga skilið sigurinn. 

En eins og seinni hálfleikurinn var þá er jafntefli sanngjarnt. 

Ég er ótrúlega stoltur af liðinu og öllum hópnum í dag. Mikil orka í okkur,“ sagði Jökull meðal annars eftir leik. 

Ítarlegra viðtal við Jökul verður á mbl.is í fyrramálið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert