Valur fær sænskan framherja

Svínn Albin Skoglund er genginn til liðs við Val.
Svínn Albin Skoglund er genginn til liðs við Val. Ljósmynd/Valur

Sænski knattspyrnumaðurinn Albin Skoglund er genginn til liðs við Val og skrifar undir samning til ársins 2026. 

Albin kemur til Vals frá sænska B-deildarfélaginu Utsikten og er þegar kominn með leikheimild. 

Albin ólst upp hjá Häcken en hefur einnig leikið með Örgryte, Oddevold og Ljungskilde. Hann á að baki yfir 100 leiki í B-deild Svíþjóðar sem og nokkra unglingalandsleiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert