18. umferð: Loksins einhver annar

Jónatan Ingi Jónsson skoraði sína fyrstu þrennu í efstu deild …
Jónatan Ingi Jónsson skoraði sína fyrstu þrennu í efstu deild gegn HK. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jónatan Ingi Jónsson varð á sunnudagskvöldið fyrsti Valsmaðurinn annar en Patrick Pedersen til að skora þrennu fyrir Val í efstu deild karla í ellefu ár, þegar Hlíðarendaliðið vann HK 5:1 í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Þetta var fyrsta þrenna Jónatans í deildinni en samherji hans í dag, Kristinn Freyr Sigurðsson, skoraði þrennu fyrir Val gegn ÍA árið 2013. Frá þeim tíma höfðu Valsmenn sex sinnum skorað þrennu í deildinni og Patrick Pedersen séð um þær allar.

Finnur Orri Margeirsson er kominn í fimmta til sjötta sæti …
Finnur Orri Margeirsson er kominn í fimmta til sjötta sæti yfir leikjahæstu menn deildarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Finnur Orri Margeirsson lék með FH á ný eftir tíu leikja fjarveru þegar liðið tapaði 1:0 fyrir KR í gærkvöld og hann jafnaði við Gunnar Oddsson í fimmta sæti yfir leikjahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi. Ef meiðslin hefðu ekki komið til hefði hann getað jafnað Gunnleif Gunnleifsson í þriðja sætinu í gærkvöld. Sex efstu menn eru nú þessir:

376 Óskar Örn Hauksson
321 Birkir Kristinsson
304 Gunnleifur Gunnleifsson
301 Daníel Laxdal
294 Gunnar Oddsson
294 Finnur Orri Margeirsson

Ólafur Íshólm Ólafsson er kominn með 100 leiki í deildinni.
Ólafur Íshólm Ólafsson er kominn með 100 leiki í deildinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólafur Íshólm Ólafsson markvörður Fram lék sinn 100. leik í efstu deild þegar Framarar sóttu Skagamenn heim. Þar af eru 70 leikir fyrir Fram, 29 fyrir Fylki og einn fyrir Breiðablik.

Viktor Jónsson skoraði sitt 14. mark í deildinni í ár þegar ÍA vann Fram 1:0. Hann hefur níu leiki til þess að bæta við sex mörkum og verða þá fyrstur til að skora 20 mörk í efstu deild karla.

Gunnar Jónas Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í deildinni þegar hann jafnaði fyrir Vestra gegn Víkingi.

Úrslit­in í 18. um­ferð:

Vík­ing­ur R. - Vestri 1:1
Fylk­ir - KA 1:1
Val­ur - HK 5:1
Stjarn­an - Breiðablik 2:2
KR - FH 1:0 
ÍA - Fram 1:0

Marka­hæst­ir í deild­inni:
14 Vikt­or Jóns­son, ÍA
12 Pat­rick Peder­sen, Val

10 Jónatan Ingi Jóns­son, Val
9 Emil Atla­son, Stjörn­unni

8 Gylfi Þór Sig­urðsson, Val
8 Helgi Guðjóns­son, Vík­ingi R.

6 Beno­ný Breki Andrés­son, KR
6 Danij­el Dej­an Djuric, Vík­ingi R.

6 Guðmund­ur Magnús­son, Fram
6 Hall­grím­ur Mar Stein­gríms­son, KA
6 Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son, Breiðabliki
6 Sig­urður Bjart­ur Halls­son, FH
6 Valdi­mar Þór Ingi­mund­ar­son, Vík­ingi
5 Ari Sig­urpáls­son, Vík­ingi R.

5 Arnþór Ari Atla­son, HK
5 Björn Daní­el Sverris­son, FH
5 Daní­el Haf­steins­son, KA
5 Haukur Örn Brink, Stjörnunni
5 Ja­son Daði Svanþórs­son, Breiðabliki
5 Ni­kolaj Han­sen, Vík­ingi R. 
5 Tryggvi Hrafn Har­alds­son, Val
5 Úlfur Ágúst Björns­son, FH
5 Viktor Karl Einarsson, Breiðabliki

Næstu leik­ir:
15.8. Valur - Breiðablik
17.8. Vestri - KR
18.8. KA - Stjarnan
18.8. HK - Fylkir
19.8. FH - Valur
19.8. Breiðablik - Fram
19.8. Víkingur R. - ÍA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert