Breiðablik fær einn besta leikmann 1. deildarinnar

Samantha Smith er orðin leikmaður FHL.
Samantha Smith er orðin leikmaður FHL. Ljósmynd/FHL

Bandaríska knattspyrnukonan Samantha Smith er gengin til liðs við Breiðablik á láni frá Austfjarðaliðinu FHL. 

Samantha hefur verið mögnuð í liði FHL og skorað 15 mörk í 14 leikjum í 1. deildinni á tímabilinu. 

FHL er komið upp í Bestu deild kvenna en liðið hefur verið yfirburða á tímabilinu. 

Samantha mun koma til með að hjálpa Breiðabliki í bikarúrslitunum, deildinni sem og Evrópukeppni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert