Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur fundið leik HK og KR í 17. umferð Bestu deildar karla nýjan leiktíma eftir að honum var frestað í tvígang.
Leikurinn mun nú fara fram í Kórnum fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 20.
Upphaflega átti hann að fara fram miðvikudaginn 7. ágúst en var frestað um sólarhring vegna framkvæmda í Kórnum þar sem nýtt gervigras var lagt í höllinni.
Daginn eftir þurfti svo að fresta leiknum öðru sinni þegar í ljós kom að annað markið í Kórnum var ónothæft og tilraunir til lagfæringa báru ekki árangur.
Mark af æfingavelli HK fyrir utan Kórinn var þá borið inn í höllina en reyndist ekki vera löglegt.