Framlengir við Breiðablik

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í leik með Breiðabliki í sumar.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í leik með Breiðabliki í sumar. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnukonan Vigdís Lilja Kristjánsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið Breiðablik sem gildir út tímabilið 2025.

Vigdís Lilja er 19 ára fjölhæfur sóknarmaður sem hefur leikið afar vel fyrir Breiðablik á yfirstandandi tímabili og skorað átta mörk í 16 leikjum í Bestu deildinni.

Alls á hún að baki 55 leiki fyrir Blika í efstu deild þar sem hún hefur skorað 13 mörk.

Breiðablik er í öðru sæti Bestu deildarinnar með 42 stig, einu stigi á eftir toppliði Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert