Kallaður til baka í Garðabæinn

Þorlákur Breki Baxter gekk til liðs við Stjörnuna í apríl.
Þorlákur Breki Baxter gekk til liðs við Stjörnuna í apríl. Ljósmynd/Stjarnan

Stjarnan hefur kallað knattspyrnumanninn Þorlák Breka Baxter til baka úr láni frá Selfossi, þar sem hann hefur leikið fyrri hluta sumars.

Breki, eins og hann er kallaður, gekk til liðs við Stjörnuna í byrjun apríl á þessu ári eftir tæplega árs dvöl hjá ítalska félaginu Lecce.

Þremur vikum síðar var hann svo lánaður til uppeldisfélagsins Selfoss þar sem hann skoraði fimm mörk í 15 leikjum í 2. deildinni í sumar.

Breki er 19 ára gamall og hefur leikið fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert