KR-ingar styrkja sig fyrir næstu leiktíð

Matthias Præst er einn af lykilmönnum Fylkis.
Matthias Præst er einn af lykilmönnum Fylkis. mbl.is/Óttar Geirsson

Danski knattspyrnumaðurinn Matthias Præst mun ganga í raðir KR eftir yfirstandandi tímabil. 

Matthias er leikmaður Fylkis en hann skrifar undir þriggja ára samning við KR-inga. 

Hann hefur verið í lykilhlutverki á miðjunni hjá Fylkisliðinu í sumar. Fylkir er í neðsta sæti með 13 stig, einu stigi frá öruggu sæti. 

Í tilkynningu segjast KR-ingar hafa viljað fá Matthias fyrr en að svo verði ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert