Serbneski knattspyrnumaðurinn Dusan Brkovic er farinn frá FH og til Leiknis úr Reykjavík.
Leiknir spilar í 1. deildinni en Dusan er 35 ára gamall miðvörður. Han hefur verið á Íslandi síðan 2021 og var í stóru hlutverki hjá KA áður en hann gekk í raðir FH síðasta vetur.
Hlutverk hans hjá FH var öllu minna og lék hann aðeins sjö leiki í Bestu deildinni með liðinu.