Agla María áfram í Kópavogi

Agla María Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik.
Agla María Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik. mbl.is/Eyþór Árnason

Agla María Albertsdóttir, lykilkona knattspyrnuliðs Breiðabliks, hefur skrifað undir nýjan samning við Kópavogsfélagið til ársins 2025. 

Agla María hefur skorað sjö mörk í níu leikjum á tímabiilinu. Þá hafa meiðsli haldið henni frá keppni undanfarið. Félagið greinir hins vegar frá því að það styttst í endurkomu hennar. 

Agla María á að baki 191 leik fyrir Breiðablik þar sem hún hefur skorað 138 mörk. Þá á hún einnig 58 landsleiki að baki. 

Breiðablik er í mikilli toppbaráttu við Val í Bestu deildinni en liðið er með 42 stig, stigi minna en topplið Vals. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert