Efstu fimm liðin gerðu öll jafntefli

Leiknismaðurinn Aron Einarsson í baráttunni við Keflvíkinginn Sami Kamel.
Leiknismaðurinn Aron Einarsson í baráttunni við Keflvíkinginn Sami Kamel. mbl.is/Eyþór Árnason

Efstu fimm liðin í 1. deild karla í knattspyrnu gerðu öll jafntefli í 17. umferðinni í kvöld. 

Njarðvík og Fjölnir gerðu markalaust jafntefli en Fjölnir er í fyrsta sæti með 33 stig og Njarðvík í fjórða sæti með 27 stig. 

Keflavík gerði þá einnig markalaust jafntefli á útivelli gegn Leikni úr Reykjavík. 

Ásgeir Orri Magnússon bjargaði stigi fyrir Keflvíkinga á 64. mínútu þegar að hann varði víti Omar Sowe. 

Keflavík er í þriðja sæti með 28 stig en Leiknir er í tíunda með 17 stig. 

Fyrr í dag gerðu ÍBV og ÍR jafntefli, 2:2, í háspennu leik en ÍBV er í öðru sæti með 23 stig og ÍR í fimmta sæti með 27. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert