Danski knattspyrnumaðurinn Gustav Bonde Dahl er genginn til liðs við Fram.
Gustav Dahl er tvítugur leikmaður sem lék síðast með Vendsyssel í dönsku B-deildinni.
Daninn er kominn með leikheimild og verður því án efa með liðinu gegn Breiðabliki næsta mánudagskvöld.