Þróttur nálgast efstu fimm liðin

Kári Kristjánsson skoraði annað mark Þróttar.
Kári Kristjánsson skoraði annað mark Þróttar. mbl.is/Óttar

Þróttur vann góðan sigur á Gróttu, 3:1, í 17. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Laugardalnum í kvöld. 

Þróttarar eru með 23 stig í sjöunda sæti og aðeins fjórum stigum frá efstu fimm sætunum, sem veita umspil. 

Grótta er hins vegar í slæmum málum í neðsta sæti deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. 

Kristófer Melsted kom Gróttu yfir á 26. mínútu en Viktor Steinarsson jafanði metin á 51. mínútu, 1.1. 

Kári Kristjánsson kom síðan Þrótturum yfir á 81. mínútu og Liam Daði Jeffs innsiglaði sigur Þróttar undir blálok leiks, 3:1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert