KR kærir ákvörðun KSÍ

KR hefur kært ákvörðun KSÍ.
KR hefur kært ákvörðun KSÍ. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnudeild KR hefur kært ákvörðun KSÍ að fresta viðureign HK og KR til aga- og úrskurðarnefndar sambandsins. 

Leikur KR og HK átti að fara fram 8. ágúst en það var ekki hægt að spila leikinn vegna þess að annað markið var brotið. 

KR sendi síðan stjórn KSÍ athugasemdir þar sem að Vesturbæjarfélagið krafðist þess að KR yrði dæmdur sigur gegn HK. Vísir greindi frá.

KSÍ vísaði erindi KR frá og á leikurinn að fara fram á fimmtudeginum í næstu viku. 

KR hefur kært þá niðurstöðu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. 

Yfirlýsing KR í heild sinni:

Knattspyrnudeild KR hefur móttekið niðurstöðu stjórnar KSÍ vegna leiks KR og HK. Áður en ákvörðun var tekin sendi KR stjórn KSÍ athugasemdir sem vonast var til að teknar yrðu til skoðunar við ákvarðanatöku. Virðast þær athugasemdir ekki hafa fengið hljómgrunn.
Að vandlega athugðu máli telur KR ekki stætt á öðru en að kæra ákvörðun KSÍ til aga- og úrskurðarnefndar sambandsins. KR telur mál þetta fordæmisgefandi og því brýnt að dómstólar KSÍ úrskurði í málinu. Niðurstaða stjórnar KSÍ er á skjön við þekktar niðurstöður erlendra knattspyrnusambanda.
KR telur að ákvörðun stjórnar KSÍ mismuni félögum. Bæði KR og Vestra var fyrr í sumar gert að spila á tilgreindum varavöllum þegar vellir félaganna voru ónothæfir. KR telur að heilindi íþróttarinnar sé undir enda bjóði ákvörðun stjórnar heim hættunni á því að félög geri velli sína ónothæfa til þess að tryggja knattspyrnulega stöðu. Eins eru erlend fordæmi með þeim hætti að tryggi félög ekki nothæfa velli þá eru leikir dæmdir þeim tapaðir. Þá er nýlegt dæmi KSÍ þar sem leikvöllur Knattspyrnufélags Vesturbæjar var metinn óleikhæfur að leikur var færður yfir á varavöll félagsins og leiktíma seinkað um 30 mínútur.
KR ætlar að vísun stjórnar KSÍ til gr. 15.6. í reglugerð um knattspyrnumót eigi ekki við enda taki það ákvæði aðeins til atvika sem eru óviðráðanleg.
Bíður KR nú eftir öllum gögnum í málinu og mun í framhaldi leggja fram formlega kæru.
KR mun gæta þess að málflutningi félagsins verði gerð skil og öllum aðgengilegur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert