Valur og Breiðablik eigast við í stórleik í Bestu deild karla í knattspyrnu á heimavelli Vals að Hlíðarenda klukkan 19.15. Fylgst verður með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.
Fyrir leik er Valur í þriðja sæti með 31 stig en Breiðablik er í öðru sæti með 34 stig.