Bikarúrslitaleik KA og bikarmeistara Víkings hefur verið frestað til 21. september þar sem að Víkingar leika í umspili Sambandsdeildarinnar 22. og 29. ágúst.
Leikurinn átti að fara frá föstudagskvöldið 23. ágúst en honum hefur nú verið frestað um rúman mánuð.
Víkingar hafa unnið bikarinn í síðustu fjögur skipti en liðin mættust einnig í bikarúrslitum í fyrra. Þar unnu Víkingar, 3:1.