Ísland aldrei áður jafn ofarlega

Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei verið ofar á heimslistanum.
Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei verið ofar á heimslistanum. Arnþór Birkisson

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei verið jafn ofarlega á heimslista FIFA sem gefin var út í morgun. 

Ísland er í 13. sæti á nýja lista FIFA og fer því upp um eitt sæti frá síðasta lista. Í upphafi árs var Ísland í 15. sæti listans. 

Íslenska landsliðið stóð sig frábærlega í síðustu tveimur leikjum þess í undankeppni Evrópumótsins í síðasta mánuði. 

Ísland vann sögulegan sigur á Þýskalandi, 3:0, og góðan útisigur á Póllandi, 1:0. 

Ísland fór lægst í 22. sæti listans árið 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert