Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei verið jafn ofarlega á heimslista FIFA sem gefin var út í morgun.
Ísland er í 13. sæti á nýja lista FIFA og fer því upp um eitt sæti frá síðasta lista. Í upphafi árs var Ísland í 15. sæti listans.
Íslenska landsliðið stóð sig frábærlega í síðustu tveimur leikjum þess í undankeppni Evrópumótsins í síðasta mánuði.
Ísland vann sögulegan sigur á Þýskalandi, 3:0, og góðan útisigur á Póllandi, 1:0.
Ísland fór lægst í 22. sæti listans árið 2018.