Pétur Pétursson, þjálfari kvennaliðs Vals í knattspyrnu, er búinn að aflita á sér hárið eftir að Valskonur urðu bikarmeistarar síðasta föstudagskvöld.
Pétur var búinn að lofa því að aflita á sér hárið ef að Valskonur yrðu bikarmeistarar og stóð hann við það.
Eggert Jóhannesson ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is smellti mynd af Pétri er hann stýrði Valskonum til sigurs á Fylki, 2:0, í Bestu deildinni í kvöld.