Mæta Finnlandi í tveimur vináttuleikjum

Bryndís Arna Níelsdóttir á þrjá leiki að baki fyrir U23-ára …
Bryndís Arna Níelsdóttir á þrjá leiki að baki fyrir U23-ára landslið Íslands og hefur skorað eitt mark í þeim. Ljósmynd/Alex Nicodim

Íslenska U23-ára landslið kvenna í knattspyrnu mun mæta jafnöldrum sínum frá Finnlandi í tveimur vináttuleikjum í lok október.

Leikirnir fara báðir fram í Finnlandi dagana 24. og 27. október en ekki liggur fyrir að svo stöddu á hvaða velli eða völlum þeir verða leiknir.

U23-ára landsliðið lék fjóra vináttulandsleiki á síðasta ári, tvo gegn Danmörku og tvo gegn Marokkó.

Báðir leikirnir gegn Dönum töpuðust en Ísland vann fyrri leikinn gegn Marokkó og þeim síðari lauk með jafntefli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert