ÍR og Njarðvík unnu bæði sterka sigra í 19. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld. ÍR lagði Fjölni á útivelli, 2:1, og Njarðvík vann Gróttu á heimavelli, 1:0.
ÍR er í fimmta sæti með 31 stig og Njarðvík sæti ofar með jafnmörg stig. Eru liðin aðeins þremur stigum á eftir Fjölni í öðru sæti. Grótta er þá áfram í botnsæti deildarinnar með 13 stig.
Í leik Fjölnis og ÍR í Grafarvoginum náði ÍR forystunni eftir rúmlega stundarfjórðungs leik þegar Bragi Karl Bjarkason skoraði.
Rafael Máni Þrastarson jafnaði hins vegar metin á 24. mínútu.
Um miðjan síðari hálfleik fékk Axel Freyr Harðarson hjá Fjölni sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Einum fleiri tryggði Gils Gíslason ÍR-ingum sigurinn með marki fjórum mínútum fyrir leikslok.
Í Njarðvík var það Færeyingurinn Kaj Leo í Bartalsstovu sem tryggði heimamönnum sigurinn eftir rúmlega hálftíma leik.