Gefa Víkingum 100% líkur

Víkingar eru í afar góðum málum.
Víkingar eru í afar góðum málum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tölfræðimiðilinn Football Meets Data gefur Víkingi úr Reykjavík 100% líkur á að komast í lokakeppni Sambandsdeildar karla í knattspyrnu í haust. 

Víkingur vann fyrri leikinn gegn UE Santa Coloma, 5:0, í umspili um sæti í Sambandsdeildinni á Víkingsvellinum í gærkvöldi. 

Seinni leikur liðanna fer fram á fimmtudaginn í næstu viku. Þrátt fyrir að það sé seinni leikur eftir gefur tölfræðimiðilinn Víkingum 100& líkur á að komast í Sambandsdeildina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert