Stýrir Keflavík út tímabilið

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir tekur við af Jonathan Glenn.
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir tekur við af Jonathan Glenn. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir stýrir kvennaliði Keflavíkur í fótbolta út yfirstandandi tímabil. Jonathan Glenn var vikið frá störfum fyrr í vikunni.

Keflvíkingar leituðu ekki langt því Guðrún var aðstoðarþjálfari liðsins. Leikmaðurinn Caroline Van Slambrouck verður Guðrúnu til halds og trausts og verður nýr aðstoðarþjálfari.

Guðrún lék á sínum tíma 177 leiki í efstu deild með KR og skoraði í þeim 68 mörk. Hún hefur m.a. þjálfað FH, Þrótt og Hauka.  

Keflavík er í botnsæti Bestu deildarinnar með níu stig eftir 17 leiki, þremur stigum frá Tindastóli og öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert