Helga Guðrún best í átjándu umferðinni

Helga Guðrún Kristinsdóttir var best í 18. umferðinni að mati …
Helga Guðrún Kristinsdóttir var best í 18. umferðinni að mati Morgunblaðsins. mbl.is/Ólafur Árdal

Helga Guðrún Kristinsdóttir sóknarmaður Fylkis var besti leikmaður 18. umferðar Bestu deildar kvenna í knattspyrnu að mati Morgunblaðsins.

Helga Guðrún átti mjög góðan leik og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína þegar Fylkir gerði jafntefli gegn Þór/KA, 2:2, í Árbænum, sunnudaginn 25. ágúst, en 18. umferðin var öll leikin á sunnudaginn.

Helga Guðrún skoraði tvívegis í leiknum, fyrst á 11. mínútu þegar hún jafnaði metin í 1:1 með skalla úr teignum af stuttu færi. Hún kom Fylki svo yfir á 40. mínútu þegar hún nýtti færi sitt vel og skoraði fram hjá Shelby Money í marki Akureyringa.

Helga Guðrún, sem varð 27 ára gömul laugardaginn 24. ágúst, hélt upp á afmælið með því að skora tvennu en hún er uppalin í Grindavík. Alls á hún að baki 27 leiki í efstu deild með Grindavík þar sem hún hefur skorað þrjú mörk.

Eftir að Grindavík féll úr efstu deild árið 2018 gekk hún til liðs við Stjörnuna þar sem hún lék í hálft tímabil áður en hún gekk til liðs við Grindavík á láni á nýjan leik. Hún lék með Álftanesi og Grindavík tímabilið 2021 en gekk til liðs við Fylki eftir tímabilið 2021 og hefur leikið í Árbænum síðan. Alls eru leikirnir í efstu deild orðnir 48 talsins og mörkin sjö.

Berglind Rós Ágústsdóttir miðjumaður Vals fékk einnig tvö M fyrir frammistöðu sína í umferðinni, sem og Akureyringurinn Sandra María Jessen sem skoraði tvívegis í Árbænum gegn Fylki og eru þær báðar í úrvalsliðinu ásamt Helgu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert