Gylfi Þór Sigurðsson er í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í 4. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í september.
Åge Hareide, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnti 24-manna leikmannahóp sinn fyrir verkefnið í hádeginu en Ísland mætir Svartfjallalandi á Laugardalsvelli, 6. september, og Tyrklandi í Ízmir í Tyrklandi, 9. september.
Gylfi Þór lék síðast með landsliðinu gegn Liechstenstein á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2024, þann 16. október, en hann skoraði tvívegis í leiknum og varð um leið markahæsti leikmaður í sögu karlalandsliðsins.
Leikmannahópur Íslands:
Markverðir:
Elías Rafn Ólafsson - Midtjylland - 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford - 11 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Kortrijk - 4 leikir
Varnarmenn:
Alfons Sampsted - Birmingham City - 21 leikur
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken - 10 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth Argyle - 44 leikir, 1 mark
Kolbeinn Birgir Finnsson - Utrecht - 12 leikir
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos - 51 leikur, 3 mörk
Hjörtur Hermannsson - Carrarese - 27 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - Sønderjyske - 18 leikir
Logi Tómasson - Strømsgodset - 3 leikir
Miðjumenn:
Jóhann Berg Guðmundsson - Al-Orobah - 93 leikir, 8 mörk
Arnór Sigurðsson - Blackburn Rovers - 33 leikir, 2 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Valur - 80 leikir, 27 mörk
Arnór Ingvi Traustason - Norrköping - 58 leikir, 6 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha Berlín - 37 leikir, 5 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - Lille - 19 leikir, 3 mörk
Willum Þór Willumsson - Birmingham City - 9 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End - 20 leikir, 1 mark
Sóknarmenn:
Mikael Egill Ellertsson - Venezia - 15 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 28 leikir, 2 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 27 leikir, 3 mörk
Orri Steinn Óskarsson - FC Köbenhavn - 8 leikir, 2 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - Gent - 24 leikir, 6 mörk