Leiðinlegasti leikur sumarsins á Ísafirði

Vladimir Tufegdzic og Orri Sveinn Segatta eigast við í Árbænum.
Vladimir Tufegdzic og Orri Sveinn Segatta eigast við í Árbænum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vestri og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í alvöru fallbaráttuslag í 21. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Ísafirði í dag. 

Eftir leikinn er Vestri í tíunda sæti með 18 stig, jafnmörg og KR, en Fylkir er kominn úr neðsta sæti og í það næstneðsta með 17 stig. 

Það var ágætis veður þegar upphitun hófst en stíf suðvestan átt setti svip sinn á fyrri hálfleikinn. Ekki bætti úr skák þegar það fór að rigna um miðjan hálfleikinn.

Það gerðist afar fátt í fyrri hálfleik mikið um barnig um allan vörn og nokkrar góðar stöður sem mynduðst. Fylkir lék með vindinn í bakið og náði lítið sem ekkert að nýta hann. Bæði lið fóru nokkuð sátt inn í hálfleikinn.

Seinni hálfleikurinn var endurtekning á fyrri hálfeikum, það gerðist afar lítið.

Bæði lið áttu einhver hálffæri en það var enginn líklegur til að skora. Það virtist vera að bæði lið voru of hrædd við að tapa að það vantaði allt þor í að vinna leikinn.

Vissulega geta þjálfararnir verið sáttir við varnarleik sinna manna. Jafntelfi gerir afar lítið fyrir bæði lið og var því skrýtið að horfa uppá það hvernig leikurinn spilaðist. Það mun enginn muna eftir þessum leik, nema þá kannski veðrinu það var það markverðasta hér í dag. Nú kemur landsleikjahlé og síðasta umferðin áður en deildinn verður skipt fer fram eftir tvær vikur.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Man. United 0:3 Liverpool opna
56. mín. Mohamed Salah (Liverpool) skorar 0:3 - Salah elskar að spila á móti United.
Tindastóll 0:0 Keflavík opna
1. mín. Leikur hafinn Það eru gestirnir úr Keflavík sem byrja með boltann.
KA 0:0 Breiðablik opna
Engir atburðir skráðir enn
FH 0:0 Stjarnan opna
Engir atburðir skráðir enn
KR 0:0 ÍA opna
Engir atburðir skráðir enn

Leiklýsing

Vestri 0:0 Fylkir opna loka
90. mín. Morten Ohlsen Hansen (Vestri) fær gult spjald
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka