Sá sem kom inn i landsliðið aftur út

Brynjar Ingi Bjarnason meiddist í leik með HamKam.
Brynjar Ingi Bjarnason meiddist í leik með HamKam. mbl.is/Óttar Geirsson

Brynjar Ingi Bjarnason, sem kom inn í landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir Sverri Inga Ingason, meiddist í leik með félagsliði sínu HamKam um helgina og verður því ekki með í leikjunum tveimur í Þjóðadeildinni. 

Júlíus Magnússon, miðjumaður Fredrikstad í Noregi, kemur inn í hans stað. Brynjar Ingi hafði verið kallaður inn fyrir Sverri Inga sem er meiddur. 

Júlíus á fimm landsleiki að baki en þeir allir hafa verið vináttulandsleikir. 

Ísland mætir Svartfjallalandi á Laugardalsvelli næsta föstudagskvöld og síðan Tyrklandi á útivelli þremur dögum síðar. 

Júlíus Magnússon.
Júlíus Magnússon. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert