Bestur í 21. umferðinni

Benoný Breki Andrésson átti stórleik gegn Skagamönnum.
Benoný Breki Andrésson átti stórleik gegn Skagamönnum. mbl.is/Árni Sæberg

Benoný Breki Andrésson, sóknarmaður KR-inga, var besti leikmaðurinn í 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Benoný skoraði þrennu á fyrstu 35 mínútum leiksins þegar KR lagði ÍA, 4:2, á Meistaravöllum á sunnudaginn og var óheppinn að fjórða markið skyldi vera dæmt af honum. Þetta er hans fyrsta þrenna í efstu deild og aðeins önnur þrenna KR-ings í deildinni á undanförnum tíu árum. Þá er hann aðeins annar leikmaðurinn á þessari öld sem skorar þrennu í fyrri hálfleik í deildinni.

Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu en aðeins þrír leikmenn fengu þá einkunn í 21. umferðinni. Hinir tveir voru Viðar Örn Kjartansson úr KA og Anton Ari Einarsson markvörður Breiðabliks.

Benoný Breki er 19 ára gamall, uppalinn hjá Breiðabliki en fór síðan til Bologna á Ítalíu þar sem hann lék með unglingaliði og kom þaðan til KR fyrir tímabilið 2023.

Úrvalslið 21. umferð má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert