Óvænt viðbót í hópinn hjá Val

Arna Sif Ásgrímsdóttir er á varamannabekk Vals í dag.
Arna Sif Ásgrímsdóttir er á varamannabekk Vals í dag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrnukonan reynda, er í leikmannahópi Vals sem leikur þessa stundina gegn Ljuboten frá Norður-Makedóníu í fyrstu umferð Meistaradeildar kvenna í Hollandi.

Þetta er óvænt því Arna slasaðist illa á hné í febrúar, þegar hún sleit krossband og reif liðþófa í leik með Val gegn Fylki.

Aðeins eru liðnir tæplega sjö mánuðir frá óhappinu en fjarvera vegna krossbandsslita eru vanalega nálægt einu ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert