4.400 miðar seldir á leikinn í kvöld

Orri Steinn Óskarsson og félagar í íslenska landsliðinu mæta því …
Orri Steinn Óskarsson og félagar í íslenska landsliðinu mæta því svartfellska í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls hafa 4.400 miðar verið seldir á leik Íslands og Svartfjallalands í fyrstu umferð 4. riðils í B-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla, sem fer fram á Laugardalsvelli í kvöld.

Enn er því nóg af miðum í boði þar sem Laugardalsvöllur tekur 9.800 manns í sæti.

Miðasala fer fram á tix.is þar sem hægt er að velja verðflokk eftir því hvar setið er í áhorfendastúkunni.

Leikurinn hefst klukkan 18.45 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert