Fimm í byrjunarliði sem byrjuðu ekki síðast

Gylfi Þór Sigurðsson kemur beint inn í byrjunarlið Íslands.
Gylfi Þór Sigurðsson kemur beint inn í byrjunarlið Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leik liðsins gegn Svartfjallalandi í 4. riðli B-deildar Þjóðadeildar UEFA á Laugardalsvelli í kvöld.

Stefán Teitur Þórðarson, Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson, Logi Tómasson og Gylfi Þór Sigurðsson koma allir inn í byrjunarliðið, en eþir byrjuðu ekki í vináttulandsleikjum gegn Englandi eða Hollandi í júní.

Arnór Ingvi Traustason, Andri Lucas Guðjohnsen, Kolbeinn Ingi Finnsson, Guðlaugur Victor Pálsson og Valgeir Lunddal Friðriksson, sem voru í byrjunarliði í öðrum eða báðum leikjum í júní, setjast allir á varamannabekkinn.

Byrjunarlið Íslands (4-3-3):

Mark: Hákon Rafn Valdimarsson

Vörn: Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson, Daníel Leó Grétarsson, Logi Tómasson.

Miðja: Gylfi Þór Sigurðsson, Stefán Teitur Þórðarson, Jóhann Berg Guðmundsson.

Sókn: Mikael Anderson, Orri Steinn Óskarsson, Jón Dagur Þorsteinsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert