Naumt tap hjá Íslandi

Daníel Tristan Guðjohnsen er í U19-ára landsliði Íslands.
Daníel Tristan Guðjohnsen er í U19-ára landsliði Íslands. Ljósmynd/Instagram

Íslenska drengjalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri mátti sætta sig við naumt tap, 1:0, fyrir Katar á alþjóðlegu móti í Slóveníu í dag.

Í frétt á heimasíðu KSÍ segir að íslenska liðið hafi verið sterkari aðilinn allan leikinn en ekki tekist að skora að þessu sinni.

Liðið vann Mexíkó 3:0 í fyrsta leik alþjóðlega mótsins á fimmtudag.

Þriðji og síðasti leikur Íslands á mótinu er gegn Kasakstan á þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert