Tindastóll bjargaði sér og felldi Fylki

Birgitta Rún Finnbogadóttir og Signý Lára Bjarnadóttir í leik liðanna …
Birgitta Rún Finnbogadóttir og Signý Lára Bjarnadóttir í leik liðanna fyrr í sumar. mbl.is/Ólafur Árdal

Fylkir er fallinn úr Bestu deild kvenna í knattspyrnu eftir 3:0- tap gegn Tindastóli á Sauðárkróki í dag. Keflavík er einnig fallin úr deildinni eftir 4:4 jafntefli gegn Stjörnunni í dag. 

Tindastóll er í áttunda sæti með 19 stig en Fylkir í níunda með 13 stig þegar ein umferð er eftir.

Tindastóll tók forystuna á fyrstu mínútu leiksins með marki frá Elísu Bríeti Björnsdóttur. Laufey Harpa Halldórsdóttir átti glæsilega sendingu inn fyrir á Elísu Bríeti sem kláraði snyrtilega framhjá Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Fylkis. 

Elísa Bríet Björnsdóttir tvöfaldaði forystu Tindastóls á 21. mínútu með sínu öðru marki. Elise Anne Morris átti góða sendingu yfir vörn Fylkis á Elísu Bríeti sem vippaði boltanum yfir Tinnu Brá. 

Aðeins sjö mínútum síðar skoraði Gabrielle Johnson þriðja mark Tindastóls. Það kom eftir góðan undirbúning frá Jordyn Rhodes sem lagði boltann á Johnson og hún hamraði boltanum í fjærhornið. 

Staðan í hálfleik, 3:0, Tindastól í vil og útlitið því svart fyrir Fylki. 

Meira jafnræði var á milli liðanna í síðari hálfleik. Fylkir var meira með boltann en náði ekki að skapa sér nein dauðafæri. 

Besta færi síðari hálfleiksins fékk varamaðurinn Aldís María Jóhannsdóttir. Hún slapp ein í gegn, fór framhjá Tinnu Brá í marki Fylkis og var með autt mark fyrir framan sig en skaut í stöngina.   

Tindastóll var líklegra að bæta við öðru marki en Fylkir að minnka muninn. Mörkin urðu ekki fleiri í dag og því lokaniðurstöður 3:0 sigur Tindastóls. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Keflavík 4:4 Stjarnan opna
90. mín. Leik lokið +4 Átta marka jafntefli í lygilegum leik og Keflavík er fallin niður í 1. deild.
Breiðablik 0:1 Sporting opna
45. mín. Hannah Seabert (Sporting) fær gult spjald Braut á Samönthu, sem var að sleppa í gegn. Skrýtið að sjá ekki rautt spjald.

Leiklýsing

Tindastóll 3:0 Fylkir opna loka
90. mín. Þremur mínútum bætt við í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert