Uppselt á leik Íslands

Leikurinn fer fram á Gürsel Aksel-vellinum í Izmir.
Leikurinn fer fram á Gürsel Aksel-vellinum í Izmir. mbl.is/Jóhann Ingi

Uppselt er á leik Íslands og Tyrklands í Þjóðadeildinni í Izmir á vesturströnd Tyrklands í kvöld.

Leikurinn fer fram á Gürsel Aksel-vellinum sem rúmar um 19.000 áhorfendur.

Mikill áhugi er fyrir leiknum en tvær sjónvarpsstöðvar, 44 blaðamenn og 22 ljósmyndarar sækja leikinn sömuleiðis.

Blaðamaður og ljósmyndari frá mbl.is verða á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert