Þór/KA missir sterka leikmenn

Lara Ivanusa í leik með Þór/KA
Lara Ivanusa í leik með Þór/KA Eyþór Árnason

Lidija Kulis og Lara Ivanusa hafa gengið til liðs við Abu Dhabi Country og leika ekki með Þór/KA í lokaumferðum Bestu deildar kvenna.

Ivanusa lék fjórtán leiki fyrir Þór/KA og Kulis fimmtán en þær munu taka þátt í Meistaradeild Asíu með nýja félaginu sínu.

Þór/KA er í þriðja sæti Bestu deildarinnar, átján stigum á eftir Breiðablik í öðru sæti en einungis stigi á undan Víkingum sem hefja úrslitakeppnina í fjórða sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert