Áfall fyrir KR-inga

KR-ingar mæta Víkingum í Vesturbænum á eftir.
KR-ingar mæta Víkingum í Vesturbænum á eftir. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumennirnir Guðmundur Andri Tryggvason og Stefán Árni Geirsson verða ekki með KR næstu vikurnar. 

KR mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings á Meistaravöllum klukkan 17 í dag en Guðmundur og Stefán Árni verða ekki með. 

Þetta staðfesti Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, í samtali við Vísi. 

Guðmundur Andri er á leið í aðgerð vegna handarbrots. Guðmundur Andri hefur enn ekki spilað fyrir KR á ný en hann gekk í raðir uppeldisfélagsins frá Val fyrr í sumar. 

Þá tognaði Stefán Árni illa aftan í læri gegn KA í lok júlí. Þá er talið líklegt að hann verði ekki meira með á tímabilinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert