Hættir eftir erfitt tímabil

Dragan Kristinn Stojanovic hættir eftir tímabilið.
Dragan Kristinn Stojanovic hættir eftir tímabilið. mbl.is/Óttar Geirsson

Dragan Kristinn Stojanovic, þjálfari meistaraflokks karla í fótbolta hjá Dalvík/Reyni, hefur ákveðið að láta af störfum þegar tímabilinu í 1. deild lýkur á morgun. Dragan upplýsti stjórn knattspyrnudeildar um þessa ákvörðun í vikunni.

Samningur Dragans er að renna út og hefur þessi reynslumikli þjálfari ákveðið að róa á önnur mið. Dragan hefur stýrt Dalvík/Reyni síðustu tvö tímabil. Hann kom norðanmönnum upp í 1. deildina á síðustu leiktíð.

Tímabilið í ár hefur verið erfitt og er liðið þegar fallið aftur niður í 2. deild. Síðasti leikur liðsins undir stjórn Dragans verður gegn Þrótti úr Reykjavík á Dalvíkurvelli á morgun klukkan 14.

„Eftir tvö góð ár á Dalvík tel ég það góðan tímapunkt að láta störfum. Ég þakka Dalvík/Reyni fyrir traustið og tækifærið til að stýra liðinu þessi tvö ár. Þetta hefur verið skemmtilegur tími og árið í fyrra var frábært.

Þetta ár hefði vissulega geta verið betra en við gáfum öllum okkar andstæðingum góðan leik. Ég hef verið ánægður með leikmennina, stjórnina og alla sjálfboðaliða sem hafa viljað hjálpa til á þessum tíma og þakka kærlega fyrir mig,“ er haft eftir Dragan í yfirlýsingu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert