Systurnar Sigurborg Katla og Þórdís Embla Sveinbjörnsdætur spiluðu saman í sigri Víkings úr Reykjavík á FH, 3:0, í Hafnarfirðinum í gær.
Sigurborg Katla, sem er átján ára gömul, ver mark Víkinga en Þórdís Embla, sem verður 17 ára í nóvember, kom inn á í fyrsta sinn í Bestu deildinni.
Nýliðar Víkings eru í góðri stöðu í Bestu deildinni en liðið er með 32 stig í fjórða sæti og á enn möguleika á að hafna í þriðja sæti.