Stjarnan sjöunda eftir sigur þrátt fyrir óskabyrjun Tindastóls

Stjarnan og Tindastóll enda í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar.
Stjarnan og Tindastóll enda í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. mbl.isArnþór Birkisson

Stjarnan endar í sjöunda sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta og Tindastóll í áttunda eftir að Stjarnan vann leik liðanna í lokaumferð neðri hluta deildarinnar í Garðabæ í dag, 2:1.

Stjarnan hlaut því 25 stig en Tindastóll, sem þurfti tveggja marka sigur til að ná sjöunda sætinu, fékk 19 stig í áttunda sætinu.

Byrjun Tindastóls var mögnuð því í fyrstu sókn leiksins fékk Jordyn Rhodes boltann frá Gabrielle Johnson, lék aðeins áfram, og skaut hörkuskoti af 25 metra færi efst í vinstra hornið. Glæsilegt mark og Tindastóll kominn yfir, 1:0.

Hulda Hrund Arnarsdóttir jafnaði fyrir Stjörnuna á 24. mínútu með laglegu skoti úr miðjum vítateig eftir sendingu Gyðu Kristínar Gunnarsdóttur frá hægri.

Liðin sóttu til skiptis og fengu m.a. samtals 14 hornspyrnur í fjörugum fyrri hálfleik en staðan var 1:1 að honum loknum.

Stjarnan byrjaði seinni hálfleik betur og komst yfir á 48. mínútu. Hrefna Jónsdóttir fékk boltann frá Úlfu Dís Úlfarsdóttur, lék inn í miðjan vítateig og skoraði með góðu skoti, 2:1 fyrir Stjörnuna.

Jordyn Rhodes fékk dauðafæri til að jafna fyrir Tindastól á 80. mínútu en skaut framhjá nánast opnu marki af markteignum.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Southampton 0:3 Man. United opna
90. mín. Alejandro Garnacho (Man. United) skorar 0:3 - Dalot leggur boltann út á Garnacho sem skorar af öryggi.
Fylkir 1:4 Keflavík opna
90. mín. Leik lokið 1:4 - Sanngjarn sigur Keflvíkinga staðreynd. Takk í dag.
Liverpool 0:1 Nottingham F. opna
95. mín. Leik lokið
Leiknir R. 1:1 ÍBV opna
90. mín. Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV) fær víti Eiður Atli hendir sér niður innan teigs og Gunnar Freyr bendir á punktinn. Eyjamenn geta jafnað í uppbótartíma. Sýndist þetta vera frekar ódýrt.
Keflavík 4:0 Fjölnir opna
90. mín. Leik lokið Leik lokið hér í Keflavík með öruggum 4:0 sigri.

Leiklýsing

Stjarnan 2:1 Tindastóll opna loka
90. mín. Leikurinn stöðvaður á 4. og síðustu mínútu í uppbótartíma þegar Saga Ísey hjá Tindastóli fær boltann af krafti í höfuðið af stuttu færi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert