Blikar á toppinn eftir mikinn markaleik

Leifur Andri Leifsson og Viktor Karl Einarsson í leiknum í …
Leifur Andri Leifsson og Viktor Karl Einarsson í leiknum í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Breiðablik hafði betur gegn HK, 5:3, á heimavelli í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta áður en henni verður skipt í efri og neðri hluta.

Breiðablik er með 49 stig á toppnum, þremur stigum á undan Víkingi. HK er í tíunda sæti með 20 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

Breiðablik byrjaði betur og sótti stíft fyrstu mínúturnar. Það skilaði sér í fyrsta marki leiksins á 9. mínútu. Viktor Karl Einarsson potaði þá boltanum í netið úr teignum eftir góðan samleik við Kristófer Inga Kristinsson.

Viktor Karl fékk úrvalsfæri til að skora annað mark Breiðabliks og annað markið sitt á 15. mínútu en Christoffer Petersen í marki HK varði glæsilega frá honum þegar Viktor slapp einn í gegn.

HK-ingar nýttu sér það því Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði á 25. mínútu með skalla af stuttu færi eftir góða aukaspyrnu frá Ívari Erni Jónssyni.

Aðeins þremur mínútum síðar kom Arnþór Ari Atlason HK-ingum í 2:1 er hann slapp í gegn eftir hræðilega sendingu til baka frá Davíð Ingvarssyni.

HK-ingar voru nálægt því að komast í 3:1 á 36. mínútu er Eiður skallaði í slá af stuttu færi og boltinn datt ofan á marklínuna, en fór ekki yfir hana. Reyndist það síðasta góða færið í hálfleiknum og HK fór með eins marks forskot inn í hálfleikinn.

Það tók Breiðablik níu mínútur í seinni hálfleik að eyðileggja það forskot því Kristófer Ingi Kristinsson jafnaði á 54. mínútu. Hann fékk þá boltann á vinstri kantinum, sótti á vörnina og lagði boltann hnitmiðað í fjærhornið.

Eiður Gauti var hársbreidd frá því að koma HK í 3:2 á 58. mínútu er hann slapp í gegn og vippaði yfir Anton Ara í markinu. Stefndi boltinn í markið en Viktor Örn Margeirsson bjargaði glæsilega á línu.

Örfáum sekúndum síðar slapp Aron Bjarnason í gegn eftir sendingu frá Höskuldi Gunnlaugssyni og refsaði grimmilega. Þremur mínútum eftir það var staðan orðin 4:2 því Höskuldur skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu Kristins Jónssonar.

Blikar voru ekki hættir því Aron Bjarnason gerði sitt annað mark og fimmta mark Breiðabliks á 78. mínútu er hann afgreiddi boltann skemmtilega upp í þaknetið eftir sprett og sendingu frá Davíð. 

Varamaðurinn Atli Þór Jónasson skoraði sárabótamark fyrir HK er hann gerði þriðja mark gestanna í uppbótartíma er hann slapp í gegn og skaut í slá og inn. Nær komst HK ekki og Breiðablik vann sigur í markaleik. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Tottenham 0:1 Arsenal opna
90. mín. Leik lokið Arsenal fer með sigur af hólmi. Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel hetjan.
Stjarnan 1:0 Vestri opna
90. mín. Leik lokið
ÍA 1:0 KA opna
90. mín. Leik lokið Mikilvægur sigur ÍA.
Fram 3:3 FH opna
95. mín. Leik lokið

Leiklýsing

Breiðablik 5:3 HK opna loka
90. mín. George Nunn (HK) á skot framhjá Lætur vaða af 20 metra færi. Fín tilraun en boltinn aðeins framhjá fjærstönginni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert