Dramatískt sex marka jafntefli í Úlfarsárdal

Framarar fagna marki Djenairo Daniels.
Framarar fagna marki Djenairo Daniels. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Fram og FH gerðu jafntefli í sex marka leik, 3:3, í lokaumferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu karla fyrir tvískiptingu á Framvelli í Úlfarsárdal í dag.

Fram fór upp fyrir KA með sigrinum og í sjöunda sæti með 27 stig og leikur í neðri hluta deildarinnar en FH er dottið niður í sjötta sæti úr fjórða sæti með með 33 stig og mun leika í efri hlutanum.

ÍA og Stjarnan komust bæði yfir FH en þau eru með 34 stig.

Fyrri leiknum í Kaplakrika lauk einnig með 3:3 jafntefli.

Fyrri hálfleikurinn fór fjörlega af stað þegar Djenairo Daniels skoraði eftir hornspyrnu frá Fred. Restin af fyrri hálfleiknum var róleg, mikið um stopp vegna meiðsla en Björn Daníel Sverrisson og Daniels markaskorari Fram þurftu að yfirgefa völlinn vegna höfuðmeiðsla.

Uppbótartíminn í fyrri hálfleiknum var sex mínútur og nýttu FH-ingar þær gríðarlega vel og skoruðu tvö mörk.

Fyrst var það Kristján Flóki Finnbogason sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir FH í sumar eftir frábæran undirbúning frá Bjarna Guðjóni Brynjólfsyni en það var svo Kjartan Kári Halldórsson sem skoraði beint úr aukaspyrnu en boltinn hafði viðkomu í Guðmundi Magnússyni og Stefán Þór Hannesson í marki Fram kom engum vörnum við. 2:1 fyrir FH í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn fór rólega af stað en kom jöfnunarmark Framara á 68. mínútu. Eftir fyrirgjöf Haralds Einars Ásgrímssonar frá vinstri sló Daði Freyr Arnarsson markvörður FH boltann út í vítateig og þar mætti Alex Freyr Elísson og jafnaði leikinn með föstu skoti af stuttu færi.

FH-ingar fengu vítaspyrnu á 77. mínútu þegar brotið var á Sigurði Bjarti Hallssyni og var það Kjartan Kári Halldórsson sem skoraði úr henni nokkuð örugglega.

Á lokamínútu leiksins fengu Framarar svo vítaspyrnu þegar brotið var á Brynjari Gauta Guðjónssyni innan vítateigs. Alex Freyr fór á vítapunktinn og skoraði framhjá Daða Frey í markinu, sem var í boltanum.

Djenairo Daniels í þann mund að koma Fram í forystu.
Djenairo Daniels í þann mund að koma Fram í forystu. Ljósmynd/Kristinn Steinn
Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Tottenham 0:1 Arsenal opna
90. mín. Leik lokið Arsenal fer með sigur af hólmi. Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel hetjan.
Stjarnan 1:0 Vestri opna
90. mín. Leik lokið
ÍA 1:0 KA opna
90. mín. Leik lokið Mikilvægur sigur ÍA.
Breiðablik 1:0 HK opna
9. mín. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) skorar 1:0 - Blikar eru komnir yfir! Viktor með flotta sendingu fram völlinn á Kristófer og Kristófer leikur sér aðeins með boltann, áður en hann sendir aftur á Viktor og hann leggur knöttinn í hornið úr teignum.

Leiklýsing

Fram 3:3 FH opna loka
95. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert