Potter á Hlíðarenda

Graham Potter mun fylgjast með leik Vals og KR í …
Graham Potter mun fylgjast með leik Vals og KR í kvöld. AFP/Darren Staples

Graham Potter, fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea og Brighton, er staddur hér á landi og verður viðstaddur leik Vals og KR í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu fyrir tvískiptingu í kvöld.

Vísir greinir frá því að Potter sé staddur hér á landi vegna fyrirlesturs sem hann hélt í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, í tengslum við UEFA Pro þjálfaranámskeið.

Potter hefur verið atvinnulaus frá því að honum var vikið frá störfum hjá Chelsea í apríl 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert