Bestur í 20. umferðinni

Gísli Gottskálk Þórðarson.
Gísli Gottskálk Þórðarson. mbl.is/Eyþór Árnason

Gísli Gottskálk Þórðarson, sóknartengiliðurinn efnilegi hjá Víkingi, var besti leikmaður 20. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Gísli lék mjög vel þegar Víkingar sigruðu KR örugglega í Vesturbænum, 3:0, síðasta föstudagskvöld en þar skoraði hann fyrsta markið og lagði upp annað mark liðsins á fyrstu 22 mínútum leiksins. Hann fékk tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína.

Gísli hélt upp á tvítugsafmælið með sigrinum og frammistöðunni en það var daginn áður, 12. september. Fyrir þetta tímabil hafði hann aðeins leikið 16 leiki í efstu deild og ekki skorað mark en hafði fyrir leik Víkings gegn Fylki í gærkvöld spilað 18 leiki í deildinni og skorað tvö mörk.

Umfjöllunina í heild sinni og úrvalslið 20. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert